Franciszek og Jóel með landsliðinu

Nýlega lauk landsleik Íslands og Austurríkis í U15 í knattspyrnu karla á UEFA Development móti sem fer einmitt fram í Austurríki. Ísland sigraði í þessum fyrsta leik mótsins með sjö mörkum gegn fimm þeirra heimamanna. Völsungar eiga tvo leikmenn í liðinu, þá Franciszek August Dabrowski og Jóel Ingi Eysteinsson og voru þeir í byrjunarliði Íslands í dag.

Inga Björg með bronsið

Inga Björg Brynjúlfsdóttir vann nýlega til bronsverðlauna með íslenska landsliðinu í blaki með U-17 landsliðinu en liðið vann bæði England og Dani í baráttunni um bronsið á NEVZA mótinu. Inga Björg leikur með meistaraflokki KA í vetur og í lykilhlutverki þar.

Hvatningaverðlaun fyrir samþættingarverkefnið

Fern verkefni íþrótta- og ungmennafélaga hlutu Hvatningarverðlaun UMFÍ á 46. Sambandsráðsfundi UMFÍ sem fram fór á Ísafirði um helgina. Samþættingarverkefni Völsungs, Borgarhólsskóla, Frístundar, Grænuvalla og Norðurþings hlaut verðlaun að þessu sinni. Verkefnið tengir saman íþróttastarf, skóla og frístundir barna á aldrinum 4–8 ára.

Stjórn Völsungs fundar

Það er í ýmis horn að líta hjá aðalstjórn félagsins enda spennandi ár framundan. Nýlega kom fulltrúi blakdeildar Völsungs og kynnti framkvæmd á Öldungamóti í blaki sem fer fram í Þingeyjarsýslum í afmælismánuðinum á næsta ári. Þá vinnur stjórn félagsins að skipulagninu fyrir afmælisár félagsins. Hundrað ár frá stofnun þess og sannarlega tækifæri til að hefja okkur upp á þessum tímamótum, gleðjast og fagna.

Frá Húsavík í landsliðsbúning

Það er alltaf sérstakt þegar leikmaður úr röðum Völsungs klæðist landsliðstreyju. Auður Ósk Kristjánsdóttir leikmaður Völsungs í knattspyrnu hefur verið valin í U17 landslið Íslands í fyrri umferð EM 2027. Liðið heldur til Þýskalands í október og er í riðli með Kasakstan, Tékklandi og Þýskalandi.

Valin í landsliðið

Í Völsungi er margt efnilegt íþróttafólk og starfið metnaðarfullt. Auður Ósk Kristjánsdóttir hefur verið valin í landslið U-17 í knattspyrnu kvenna. Hópurinn tekur þátt í æfingamóti sem fer fram í Portúgal í september og keppir Ísland við Walesverja, Portúgali og Dani.

Einn stærsti íþróttaviðburður á svæðinu

Völsungsmótið var haldið liðna helgi. Um 850 iðkendur frá Skagafirði austur á land, drengir og stúlkur í áttunda, sjöunda og sjötta flokki öttu kappi í knattspyrnu á GPG vellinum í blíðskaparveðri. Alls tilkynntu 167 lið komu sína og voru spilaðir 390 leikir á sextán knattspyrnuvöllum. Knappsyrnuuppeldi í hámarki.

Jónas Halldór tekur við mikilvægu hlutverki á Norðurlandi eystra

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) hafa styrkt starf svæðisstöðva íþróttahreyfingarinnar með ráðningu þriggja nýrra starfsmanna. Guðlaugur Arnarson hefur verið ráðinn verkefnastjóri svæðisstöðvanna, Jóna Lind Kristjánsdóttir verður svæðisfulltrúi á Vestfjörðum og Jónas Halldór Friðriksson tekur við starfi svæðisfulltrúa á Norðurlandi eystra. Öll hófu þau störf í dag.

Vaskir Völsungar á ReyCup

Síðan árið 2002 hefur ReyCup verið haldið í Reykjavík en það er eitt stærsta knattspyrnumót landsins fyrir yngri flokka. Fjörutíu og tveir vaskir Völsungar á aldrinum elleftu til sextán ára mættu til leiks síðastliðna helgi með þrjú lið. Hundruð liða og þúsundir keppenda mæta til leiks og mæta fótboltalið erlendis frá sömuleiðis.

Hjörvar Þór með landsliðinu

Nýlega lauk keppni Evrópumóts karla í blaki ú aldursflokknum yngri en 18 ára eða U18. Völsungur og Efling áttu þar fulltrúa, hann Hjörvar Þór Hnikarsson. En bæði karla- og kvennalið U18 í blaki tryggðu sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins og er það í fyrsta sinn sem blaklið Íslands tekur þátt í lokakeppni stórmóts.