Hjörvar Þór með landsliðinu

Hjörvar Þór með landsliðinu
Hjörvar Þór með landsliðinu

Nýlega lauk keppni Evrópumóts karla í blaki ú aldursflokknum yngri en 18 ára eða U18. Völsungur og Efling áttu þar fulltrúa, hann Hjörvar Þór Hnikarsson. En bæði karla- og kvennalið U18 í blaki tryggðu sér sæti í lokakeppni Evrópumótsins og er það í fyrsta sinn sem blaklið Íslands tekur þátt í lokakeppni stórmóts.

Mótið fór fram á Porto San Giorgio á Ítalíu og var Ísland með nokkrum af stærstu blakþjóðum í Evrópu í riðli eins og Ítalíu og Póllandi. Það var vitað að verkefnið væri krefjandi en spennandi um leið. Leiknir voru sjö leikir á níu dögum og því nokkuð þétt spilað í riðlakeppninni auk æfinga á hverjum degi.

Hjörvar Þór spilar stöðu frelsara fyrir Íslandshönd og stóð sig mjög vel. Íslenska liðið kom á óvart og stóð í sterkum mótherjum þrátt fyrir tapleiki. Flestar hrinur voru jafnar og voru íslensku strákarnir nálægt því að stela hringum af Pólverjum og Slóvenum. Leikurinn við Finna var ansi spennandi og góður árangur hjá stráknum.

Hjörvar Þór og félagar í íslenska landsliðinu sýndu að íslenska liðið á fullt erindi á stórmót í sínum aldursflokki og mótið góð innistæða í reynslubankann og leikmönnum hvatning að æfa vel og gera enn betur í framtíðinni. Reynsla Hjörvars Þórs af spilamennsku með bæði Völsungi og Eflingu í Unbroken deildinni hefur skilað sér þrátt fyrir ungan aldur.

Það er svo sannarlega mikil viðurkenning fyrir gott starf blakdeildar að sjá unga leikmenn eins og Hjörvar Þór og Ingu Björg taka svona stór skref í sínum ferli, keppa á stórmótum og standa sig vel sem lykilleikmenn í landsliðshópum Íslands. Vonandi verður árangur þeirra hvatning fyrir yngri leikmenn félagsins og sýnir þeim að með dugnað og metnað í farteskinu eru stórir draumar mögulega bara rétt handan við hornið.