Hvatningaverðlaun fyrir samþættingarverkefnið

Fern verkefni íþrótta- og ungmennafélaga hlutu Hvatningarverðlaun UMFÍ á 46. Sambandsráðsfundi UMFÍ sem fram fór á Ísafirði um helgina. Samþættingarverkefni Völsungs, Borgarhólsskóla og Norðurþings hlaut verðlaun að þessu sinni. Verkefnið tengir saman íþróttastarf, skóla og frístundir barna á aldrinum 4–8 ára.