Glæsilegur árangur Völsungsstúlkna á Símamótinu
13.07.2026
Símamótið er stærsta knattspyrnumót á Íslandi en mótið fór fram um helgina á vegum Breiðabliks í Kópavogi. Um 3.100 stúlkur tóku þátt í mótinu og spilaðir voru rúmlega 1.600 leikir. Að baki mótinu liggur gríðarlegt skipulag þar sem hundruð sjálfboðaliða, starfsmanna Breiðabliks og Kópavogsbæjar lögðu hönd á plóg til að gera mótið að eftirminnilegri upplifun fyrir allar þátttakendur.