- Íþróttagreinar
- Aðalstjórn
- Hafa samband
- Samþætting
- Skráning
- Sagan
Síðan árið 2002 hefur ReyCup verið haldið í Reykjavík en það er eitt stærsta knattspyrnumót landsins fyrir yngri flokka. Fjörutíu og tveir vaskir Völsungar á aldrinum elleftu til sextán ára mættu til leiks síðastliðna helgi með þrjú lið. Hundruð liða og þúsundir keppenda mæta til leiks og mæta fótboltalið erlendis frá sömuleiðis.
Iðkendur leika við jafningja sína, mynda vináttubönd og skapa minningar sem endast lengi. Auk knattspyrnu er boðið upp á gleði, samveru og alþjóðlega stemningu. ReyCup snýst um meira en úrslit og bikara. Markmið mótsins er að efla vináttu, virðingu og gleði í gegnum íþróttir, þar sem ungmenni frá ólíkum menningarheimum eiga kost á að kynnast, læra hvert af öðru og njóta þess að spila knattspyrnu saman. Þannig er ReyCup ekki aðeins fótboltamót heldur alþjóðleg hátíð íþrótta og samfélags.
Fjórði flokkur kvenna lenti í sjötta sæti, fjórði flokkur karla í öðru sæti og þriðji flokkur karla í fimmta sæti í sínum riðlum. Liðin stóðu sig frábærlega og félagi sínu til sóma. Flottur fótbolti og hegðun iðkenda til fyrirmyndar iann sem utan vallar og óhætt að segja að framtíðin er björt í knattspyrnunni hjá Völsungi. Félagið þakkar foreldrum fyrir mótið og utanumhald með krökkunum.