Franciszek og Jóel með landsliðinu

Franciszek og Jóel í Austurríki
Franciszek og Jóel í Austurríki

Nýlega lauk landsleik Íslands og Austurríkis í U15 í knattspyrnu karla á UEFA Development móti sem fer einmitt fram í Austurríki. Ísland sigraði í þessum fyrsta leik mótsins með sjö mörkum gegn fimm þeirra heimamanna. Völsungar eiga tvo leikmenn í liðinu, þá Franciszek August Dabrowski og Jóel Inga Eysteinsson og voru þeir í byrjunarliði Íslands í dag.

Við sendum þeim okkar bestu kveðjur og gangi þeim vel. Áfram Völsungur.