Einn stærsti íþróttaviðburður á svæðinu

Séð yfir íþróttasvæðið og GPG-völlinn á Húsavík.
Séð yfir íþróttasvæðið og GPG-völlinn á Húsavík.

Völsungsmótið var haldið liðna helgi. Um 850 iðkendur frá Skagafirði austur á land, drengir og stúlkur í áttunda, sjöunda og sjötta flokki öttu kappi í knattspyrnu á GPG vellinum í blíðskaparveðri. Alls tilkynntu 167 lið komu sína og voru spilaðir 390 leikir á sextán knattspyrnuvöllum. Knappsyrnuuppeldi í hámarki.

Mótið tókst afar vel og fengu iðkendur þátttökuverðlaun að móti loknu. Fyrirtæki á Húsavík ýmist opnuðu starfsemi sína eða lengdu opnunartíma enda má gera ráð fyrir að gestir mótsins hafi verið á bilinu 2000 til 2500 manns. Völsungur þakkar iðkendum og gestum kærlega fyrir komuna til Húsavíkur og við hlökkum til að taka á móti ykkur að ári. Um leið viljum við þakka mótanefnd, barna- og unglingaráði og starfsfólki Völsungs fyrir góða umgjörð alla og halda merkjum Völsungs á loftiáfram Völsungur.