- Íþróttagreinar
- Aðalstjórn
- Hafa samband
- Samþætting
- Skráning
- Sagan
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) hafa styrkt starf svæðisstöðva íþróttahreyfingarinnar með ráðningu þriggja nýrra starfsmanna. Guðlaugur Arnarson hefur verið ráðinn verkefnastjóri svæðisstöðvanna, Jóna Lind Kristjánsdóttir verður svæðisfulltrúi á Vestfjörðum og Jónas Halldór Friðriksson tekur við starfi svæðisfulltrúa á Norðurlandi eystra. Öll hófu þau störf í dag.
Svæðisstöðvarnar eru samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytisins og starfa á átta svæðum um land allt. Hlutverk þeirra er að styðja við íþróttafélög og héraðssambönd, innleiða stefnu íþróttahreyfingarinnar og stjórnvalda og vinna markvisst að því að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi með sérstaka áherslu á jafnt aðgengi allra barna að íþróttum.
Jónas Halldór Friðriksson hefur verið ráðinn svæðisfulltrúi íþróttahreyfingarinnar á Norðurlandi eystra og tekur við starfinu af Kristjáni Sturlusyni. Hann verður staðsettur á Húsavík og starfar ásamt Þóru Pétursdóttur sem svæðisfulltrúa svæðisins.
Jónas er menntaður fjölmiðlafræðingur og trésmiður og hefur áratugareynslu af störfum innan íþróttahreyfingarinnar bæði sem þjálfari og síðast sem framkvæmdastjóri Völsungs. Sú reynsla gefur honum sterkan grunn til að styðja við íþróttafélög, sjálfboðaliða og héraðssambönd á Norðurlandi eystra.
Í tilefni ráðningarinnar lagði Jónas áherslu á að kröfur til íþróttafélaga hefðu aukist verulega á undanförnum árum, bæði frá foreldrum, sveitarfélögum og ríkinu. Því væri mikilvægt að félögin hefðu öfluga málsvara og stuðning í sínu daglega starfi. Markmið svæðisfulltrúanna væri að efla samstarf, styðja við þróun íþróttastarfs og tryggja að sem flest börn og ungmenni fái tækifæri til þátttöku í íþróttum, óháð búsetu eða aðstæðum.
Völsungur vonast eftir góðu samstarfi og við óskum Jónasi Halldóri til hamingju með starfið.