- Íþróttagreinar
- Aðalstjórn
- Hafa samband
- Samþætting
- Skráning
- Sagan
Það er alltaf sérstakt þegar leikmaður úr röðum Völsungs klæðist landsliðstreyju. Auður Ósk Kristjánsdóttir leikmaður Völsungs í knattspyrnu hefur verið valin í U17 landslið Íslands í fyrri umferð EM 2027. Liðið heldur til Þýskalands í október og er í riðli með Kasakstan, Tékklandi og Þýskalandi.
Landsliðsval er fyrst og fremst viðurkenning á dugnaði, metnaði og góðri frammistöðu Auðar Óskar. En fyrir félag eins og Völsung hefur það líka stærri þýðingu. Þegar ungir iðkendur sjá eina úr eigin félagi komast alla leið í landsliðshóp verður leiðin skyndilega sýnilegri. Fyrirmyndin er ekki lengur einhver langt í burtu; hún æfir á sama velli, hefur klæðst sama búningi og er hluti af sama félagi. Við óskum Auði Ósk alls hins besta og gangi henni vel, áfram Völsungur.