Valin í landsliðið

Auður Ósk Kristjánsdóttir
Auður Ósk Kristjánsdóttir

Í Völsungi er margt efnilegt íþróttafólk og starfið metnaðarfullt. Auður Ósk Kristjánsdóttir hefur verið valin í landslið U-17 í knattspyrnu kvenna. Hópurinn tekur þátt í æfingamóti sem fer fram í Portúgal í september og keppir Ísland við Walesverja, Portúgali og Dani.

Við óskum Auði Ósk til hamingju með árangurinn og góðs gengis. Við erum stolt af henni. Áfram Völsungur.