- Íþróttagreinar
- Aðalstjórn
- Hafa samband
- Samþætting
- Skráning
- Sagan
Fern verkefni íþrótta- og ungmennafélaga hlutu Hvatningarverðlaun UMFÍ á 46. Sambandsráðsfundi UMFÍ sem fram fór á Ísafirði um helgina. Samþættingarverkefni Völsungs, Borgarhólsskóla og Norðurþings hlaut verðlaun að þessu sinni. Verkefnið tengir saman íþróttastarf, skóla og frístundir barna á aldrinum 4–8 ára.
Ísak Már Aðalsteinsson, framkvæmdastjór HSÞ tók við verðlaununum og kallaði til sín Jónas Halldór Friðriksson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Völsungs, sem var á fundinum í öðru hlutverki. Til hamingju Völsungur, vel gert.