- Íþróttagreinar
- Aðalstjórn
- Hafa samband
- Samþætting
- Skráning
- Sagan
Símamótið er stærsta knattspyrnumót á Íslandi en mótið fór fram um helgina á vegum Breiðabliks í Kópavogi. Um 3.100 stúlkur tóku þátt í mótinu og spilaðir voru rúmlega 1.600 leikir. Að baki mótinu liggur gríðarlegt skipulag þar sem hundruð sjálfboðaliða, starfsmanna Breiðabliks og Kópavogsbæjar lögðu hönd á plóg til að gera mótið að eftirminnilegri upplifun fyrir allar þátttakendur.
Völsungur sendi glæsilegan hóp stúlkna til leiks. Alls fimm lið úr þremur aldursflokkum og stóðu þær sig með miklum sóma bæði innan vallar og utan. Í 5. flokki kepptu tvö lið og unnu þau bæði sína riðla og enduðu í 1. sæti. Í 6. flokki keppti eitt lið sem náði frábærum árangri og endaði í 2. sæti í sínum riðli. Þá sendi 7. flokkur tvö lið sem enduðu í 3. og 5. sæti.
Stelpurnar í 7. flokki hlutu jafnframt Háttvísiverðlaun Símamótsins sem eru veitt því liði sem sýnir framúrskarandi íþróttamennsku, virðingu og jákvætt viðmót. Það er viðurkenning sem Völsungur getur verið afar stoltur af.
Við óskum öllum stúlkunum, þjálfurum, fararstjórum og foreldrum innilega til hamingju með frábæra helgi. Þið voruð félaginu ykkar til mikils sóma og sýnduð að góður árangur felst ekki aðeins í úrslitum leikja heldur einnig í samheldni, gleði og háttvísi.