- Íþróttagreinar
- Aðalstjórn
- Hafa samband
- Samþætting
- Skráning
- Sagan
Inga Björg Brynjúlfsdóttir hefur iðkað blak af kappi í sumar. Hún æfði og spilaði með A-landsliði í júní á European League mótinu og farið reglulega í æfingabúðir með U-18 liðinu sem undirbúning fyrir útslitakepni EM fyrir U-18 lið í Lettlandi.
Landsliðshópurinn hélt utan og átti fyrsta leik við Ítalíu sem leika einmitt til úrslita í dag gegn Tyrklandi en íslensku stelpurnar öttu kappi við sterkustu þjóðir Evrópu í þessum aldursflokki. Inga Björg var fyrirliði liðsins og stóð sig reglulega vel í því hlutverki innan sem utan vallar.
Ferðin sóttist vel og í senn skemmtileg og lærdómsrík á köflum. Íslensku stelpurnar voru til fyrirmyndar og landi og þjóð til sóma. Mikil reynsla komin í reynslubankann með þátttöku á slíku stórmóti. Við erum stolt af fulltrúa Völsguns og þátttöku Ingu Bjargar með landsliðinu og gaman að fylgjast með henni ná árangri í blakinu.