Glæsilegur árangur Völsungsstúlkna á Símamótinu

Símamótið er stærsta knattspyrnumót á Íslandi en mótið fór fram um helgina á vegum Breiðabliks í Kópavogi. Um 3.100 stúlkur tóku þátt í mótinu og spilaðir voru rúmlega 1.600 leikir. Að baki mótinu liggur gríðarlegt skipulag þar sem hundruð sjálfboðaliða, starfsmanna Breiðabliks og Kópavogsbæjar lögðu hönd á plóg til að gera mótið að eftirminnilegri upplifun fyrir allar þátttakendur.

Inga Björg fyrirliði í landsliðinu

Inga Björg Brynjúlfsdóttir hefur iðkað blak af kappi í sumar. Hún æfði og spilaði með A-landsliði í júní á European League mótinu og farið reglulega í æfingabúðir með U-18 liðinu sem undirbúning fyrir útslitakepni EM fyrir U-18 lið í Lettlandi.