- Íþróttagreinar
- Aðalstjórn
- Hafa samband
- Samþætting
- Skráning
- Sagan
Völsungur er fjölgreina félag sem var stofnað 12. apríl 1927. Félagið heldur úti starfi fyrir iðkendur frá tveggja ára aldri og uppí eldri borgara, allt frá almennri hreyfingu í afreksstarf. Það eru mikil lífsgæði að geta farið á æfingu í skipulögðu íþróttastarfi, keppt fyrir hönd Völsungs, stutt félagið af pöllunum í höllinni eða úr brekkunni við knattspyrnuvellina eða hvað þá lagt sitt af mörkum sem sjálfboðaliði svo starfsemin geti haldið áfram að dafna. Við sem samfélag getum verið þakklát öllum þeim sjálfboðaliðum sem vinna fyrir félagið því án þeirra væri starfsemin fátæklegri.
Innan Völsungs er boðið uppá skipulagðt starf í:
- Íþróttaskóla Völsungs
- Blaki
- Boccia
- Knattspyrnu
- Fimleikum
- Brasilísku Jiu Jitsu
- Sundnámskeið fyrir yngstu iðkendur
Að auki er mikil gróska í:
- Hjólreiðafélagi Völsungs 640 MTB
- Skíðagöngudeild
Einnig hafa verið stundaðar íþróttar af ýmsum öðrum toga innan félagsins. Félagsmenn 18 ára og eldri eru rúmlega 1000 talsins. Það er því óhætt að segja að ekki sé til núverandi Húsvíkingur sem hefur ekki tengst íþróttafélaginu með einum eða öðrum hætti.
Áhugasamir aðilar sem vilja taka þátt í starfi félagsins, hvort sem það er sem iðkandi, félagsmaður eða sjálboðaliði er bent á að hafa samband í gegnum netfang félagsins volsungur@volsungur.is