Orkusalan

Nýjustu fréttir

  • Ásrún Ósk á úrtökumót.

    Ásrún Ósk Einarsdóttir hefur verið valin á úrtökumót fyrir stúlkur fæddar 1995. Mótið verður á Laugarvatni um helgina, þar verður æft og spilaðir tveir leikir. Við óskum Ásrúnu til hamingju og vonum að henni gangi vel um helgina.

  • Sigur í síđasta leik


    Haffi og félagar unnu síðasta leikinn gegn skotum í vítaspyrnukeppni. Haffi kom inná vinstri kantinn þegar um 20 min voru eftir í stöðunni 1-0 fyrir skota. Okkar menn jöfnuðu svo eftir þetta og unnu 7-6 í vítaspyrnukeppni. Haffi var einn af vítaskyttunum, fór yfirvegaður á punktinn og skoraði stöngin inn niðri við jörð, algjörlega óverjandi fyrir markmanninn. Flottur árangur hjá kappanum og 4 landsleikir komnir í reynslubankann fyrir framtíðina.

  • Haffi og félagar mćta Skotum

    Strákarnir í U-17 liðinu mæta skotum í leik um 6. sætið í norðurlandamótinu á morgun sunnudag kl. 08:30 að íslenskum tíma. Við óskum þeim góðs gengis og vonum að Haffi verði í byrjunarliðinu.

  • Haffi spilađi í naumu tapi gegn Englendingum


    Haffi spilaði 60 mínútur í leiknum í dag og stóð sig vel samkvæmt okkar heimildum. Hér að neðan fylgir umfjöllun af www.ksi.is um leikinn.

     

    Lesa meira

  • Haffi kom inná


    Haffi Alla kom inná á 60. mínútu í 2-1 sigri á Finnum í gær. Haffi var á vinstri kantinum eftir að hann kom inná og komst að eigin sögn ágætlega frá því. Gaman er að segja frá því að í finnska liðinu er drengur að nafni Daniel sem æfði hér í vetur með okkur þegar hann var í vinabæjarheimsókn.
    Á morgun leika strákarnir gegn Englendingum sem hafa unnið báða sína leiki til þessa og verður Haffi í byrjunarliðinu í þeim leik. Við óskum strákunum góðs gengis í leiknum. :)!! <3<3


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning