Daníel Már valinn á úrtaksćfingar
28. nóvember 2014 - Lestrar 202
Um helgina munu fara fram úrtaksæfingar fyrir norðurland á Akureyri í aldursflokknum U-16 drengja. Um er að ræða tvær æfingar sem piltarnir hafa til að sanna sig, ein á laugardeginum og önnur á sunnudeginum. Æfingarnar munu fara fram í Boganum. 22 strákar víðsvegar að af norðurlandinu hafa verið valdir og var Völsungurinn Daníel Már Hreiðarsson valin úr okkar hóp.
Úrtakshópinn má sjá HÉR.
Daníel Már í leik með 4. flokk í sumar gegn Fjarðabyggð