Úrslit Buch-Orkugöngunnar 2011 uppfært

Úrslit Buch-Orkugöngunnar 2011 uppfært Buch-Orkugangan var gengin í dag og tókst heilt yfir mjög vel....

Fréttir

Úrslit Buch-Orkugöngunnar 2011 uppfært

Buch-Orkugangan var gengin í dag og tókst heilt yfir mjög vel....

Buch-Orkugangan var gengin í dag og tókst heilt yfir mjög vel.  Þó voru smá vandræði sökum aðstæðna en Orkugangan var stytt úr 60 km. niður í 50 km. vegna hitaspár og mæltist það vel fyrir.  Brautin náði að haldast nokkuð góð og var fínasta rennsli lengst af.  Vegna þessa varð samt að sleppa að fara fram hjá Þeistareykjum en það má kíkja þangað í sumar, og svo að sjálfsögðu næsta vor. Það voru 40 keppendur sem gengu Orkugönguna og er þátttaka alltaf að aukast. 

Buch gangan, sem eru styttri vegalengdir, þ.e. 1km. 5km. 10km. og 20 km., gekk einnig með ágætum þrátt fyrir byrjunarörðugleika, en fresta þurfti henni um klukkutíma þar sem ófært var á svæðið vegna leysinga.  þar voru þátttakendur 63 talsins. 

Verið er að vinna í því að gera myndir úr göngunni aðgengilegar á vefnum.

Allar ábendingar eða athugasemdir sendist á hsh@simnet.is

Sætaröð úr 1. km. göngunni eru komin inn, sjá í neðra skjalinu (flokkaskiptingu).  Þó vantar sætaröð nokkurra keppenda og ástæða ekki enn kunn, en efstu þrjú sætin eru þó staðfest.  Vinsamlega senda ábendingar á hsh@simnet.is

Úrslit Buch-Orkugöngunnar heildarúrslit.

Úrlit Buch-Orkugöngunnar flokkaskipt.



Íþróttafélagið Völsungur

Vallarhúsi- Stóragarði 8
640 Húsavík

Kt. 710269-6379
S. 4642052 - F. 4642092 - Gsm. 8953302
volsungur@volsungur.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann okkar.

Fylgdu okkur á Facebook

Það er alltaf eitthvað líf og fjör á facebook síðunni okkar. Skelltu einu LIKE á hana og málið er dautt.