SPORHUNDAR
24. mars 2011
Af gefnu tilefni skal bent á að nærveru hunda er ekki óskað í sporinu. Stórir hundar eiga það til að spilla sporinu, sem er mjög bagalegt, sérstaklega í brekkum þar sem gæði sporsins skipta mestu máli. Auk þess skilja þeir eftir sig óþrif eins og komið hefur í ljós á vorin þegar snjór fer að minnka á heiðinni.
Stjórn skíðagöngudeildar.