Harpa og Arna Benný skrifa undir

Harpa og Arna Benný skrifa undir Völsungur hefur gengið frá samningum við leikmennina Hörpu Ásgeirsdóttur og Örnu Benný Harðardóttur um að leika með

Fréttir

Harpa og Arna Benný skrifa undir

Völsungur hefur gengið frá samningum við leikmennina Hörpu Ásgeirsdóttur og Örnu Benný Harðardóttur um að leika með meistaraflokki kvenna í knattspyrnu tímabilið 2019.   Þær spiluðu báðar með liðinu á síðasta tímabili og eru reynslumestu leikmenn liðsins.

Harpa er 32 ára miðju- og sóknarmaður.  Hún hefur spilað 146 leiki með meistaraflokki Völsungs og skorað 52 mörk.  Samtals hefur hún spilað 156 leiki í efstu deild en hún hefur einnig spilað með KR, Aftureldingu og Þór/KA/KS.  Harpa var fyrirliði liðsins síðasta sumar og skipar stóran sess í liðinu bæði innan vallar sem utan.

Arna Benný er 30 ára varnarmaður.  Hún hefur spilað 94 leiki með meistaraflokki Völsungs og skorað 6 mörk.  Hún hefur spilað 125 leiki í efstu deild en fyrir utan Völsung spilaði hún með Hömrunum og Þór/KA nokkur tímabil.  Arna Benný var einn af lykilmönnum liðsins síðasta sumar þar sem hún spilaði sem miðvörður.  Hún var valin í lið ársins í 2. deild kvenna eftir síðasta tímabil.

John Andrews þjálfari meistaraflokks kvenna er mjög ánægður með undirskriftir þessara reyndu og mikilvægu leikmanna. Hann segir að Harpa og Benný séu frábærar bæði innan vallar sem og í búningsklefanum.  Einnig séu þær miklar fyrirmyndir fyrir yngri leikmenn okkar hér á Húsavík.

Hann hlakkar til að tímabilið byrji en nú er lengjubikarinn að fara af stað hjá stelpunum og verður fyrsti leikur sunnudaginn 24. mars n.k. við Sindra/Einherja í Fjarðarbyggðahöllinni á Reyðarfirði.


F.h Arna Benný Harðardóttir og Harpa Ásgeirsdóttir


Íþróttafélagið Völsungur

Vallarhúsi- Stóragarði 8
640 Húsavík

Kt. 710269-6379
S. 4642052 - F. 4642092 - Gsm. 8953302
volsungur@volsungur.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann okkar.

Fylgdu okkur á Facebook

Það er alltaf eitthvað líf og fjör á facebook síðunni okkar. Skelltu einu LIKE á hana og málið er dautt.