Handboltaferð hjá 4. fl. piilta helgina 23-25 Okt.
Farið verður frá Íþróttahöllinni kl. 11:30 föstudaginn 23 Okt. Spilaðir verða 3 leikir í R-vík um helgina, sá fyrsti á föstudagskvöld kl:21:30 í Austurbergi. Laugardag kl.19:00 við KR. og á Sunnudag kl 10:00 um morguninn verður spilað við Fjölni í Í.M. Grafavogi. Lagt verður af stað um hádegisbilið á sunnudeginum til baka. Búið er að ganga frá gistingu og morgunmat á gistiheimili sem nefnist Capital-inn að Suðurhlíð 35d. 105 Reykjavík. Ákveðið hefur verið að allir komi með nesti með sér að heiman sem dugar fyrir föstudaginn. Strákarnir þurfa að hafa með sér svefnpoka, kodda og einnig einhvern vasapening til að kaupa sér mat á laugardag og sunnudag.Kostnaður við þessa ferð er 2000 kr. á mann. (þ.e.a.s. ferð fram og til baka, gisting og morgunmatur)