Handboltadagar með Þorbergi Aðalsteins

Handboltadagar með Þorbergi Aðalsteins Laugardaginn 21. september og Sunnudaginn 22. september mun Þorbergur Aðalsteinsson fyrrverandi landsliðsþjálfari

Fréttir

Handboltadagar með Þorbergi Aðalsteins

 
Laugardaginn 21. september og Sunnudaginn 22. september mun Þorbergur Aðalsteinsson fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands mæta til Húsavíkur og standa fyrir opnum handboltaæfingum fyrir börn og unglinga.

Þorbergur er hafsjór fróðleiks um handknattleik og hefur m.a. þjálfað auk íslenska landsliðsins hjá FH, Aftureldingu, Víkingi og um tíma í Svíþjóð.

Þorbergur tók nýverið við þjálfun 2. flokks karla hjá Víkingi samhliða því að vera aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki karla.

Auk þess að þjálfa íslenska landsliðið hefur Þorbergur leikið 148 leiki fyrir Íslands hönd og skoraði hann í þeim 369 mörk.

Þorbergur mun einnig halda námskeið fyrir þjálfara Völsungs sem mun nýtast í starfinu til framtíðar.

Opnar æfingar verða sem hér segir:

Laugardagur 21. september

  • 12:00 – 13:00  Opin æfing  1- 4 bekkur (æfing byrjar um 12.20)
  • 16:30 – 18:00  Opin æfing  5 – 8 bekkur

Sunnudagur 22. september

  • 12:00 – 13:30 opin æfing 9 bekkur og eldri

Allir velkomnir til æfinga sem og til áhorfs

 


Íþróttafélagið Völsungur

Vallarhúsi- Stóragarði 8
640 Húsavík

Kt. 710269-6379
S. 4642052 - F. 4642092 - Gsm. 8953302
volsungur@volsungur.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann okkar.

Fylgdu okkur á Facebook

Það er alltaf eitthvað líf og fjör á facebook síðunni okkar. Skelltu einu LIKE á hana og málið er dautt.