Annar dagur Húsavíkurmótsins.
20. apríl 2007
Þá er hafinn annar dagur Húsavíkurmótsins í blíðskaparveðri. Fyrsti leikur dagsins var KA B dr- Fylkir B dr sem endaði 7-7 og gefur vonandi tóninn fyrir jafna og skemmtilega keppni framundan. Það hafa flestir hlutir gengið að óskum og lítilsháttar vandamál leyst jafn óðum. Keppendur eru í kringum 220 talsvert misstórir eins og við má búast en allir eru að spila af bestu getu og um fram allt að halda í heiðri mikilvægasta þátt Húsavíkurmótsins sem er að hafa gaman.