Öldungamótiđ í blaki
Hið árlega Öldungamót í blaki fór fram á Akureyri dagana 1. – 3. maí sl. en þátttökurétt eiga blakarar 30
ára og eldri.
Mikil og góð starfsemi er hjá blakdeild Völsungs en fimmtíu manns æfa í flokki fullorðinna og um tuttugu stelpur hafa stundað krakkablak í
vetur.
Í ár voru sex lið frá Völsungi sem tóku þátt, fimm kvennalið og eitt karlalið en keppt var í 15 deildum í flokki kvenna og 7
karladeildum
Lið Völsungs keppti í eftirtöldum deildum;
2. deild karlar – Völsungur
1. deild kvenna – Völsungur A
3. deild kvenna – Völsungur B
4. deild kvenna – Völsungur C
9. deild kvenna – Völsungur D
12. deild kvenna – Völsungur E
Jöfn og skemmtilegt keppni einkenndi mótið en innan vallar unnust glæstir sigrar og sýna 159 oddahrinur það að margar jafnar rimmur fóru fram.
33,4% prósent leikjanna fóru í odd og er þetta hæsta hlutfall oddahrina undanfarin þrjú ár. Leikur þarf að sigrast með tveimur unnum
hrinum og ef staðan er jöfn eftir tvær hrinur fer leikurinn í oddahrinu.
Völsungur B sigraði 3ju deildina og mun spila í 2. deild að ári, Völsungur D lenti í þriðja sæti en Völsungur C og Völsungur E fara
niður um deild.
Mótinu lauk með góðu lokahófi í Íþróttahöllinni.
Þátttakendur gistu í sumarhúsum Sæluhúsa á Akureyri þar sem allur aðbúnaður og umgjör var til fyrirmyndar.