Völsungsdagur í íþróttahöllinni
Laugardaginn 9. september verður haldinn Völsungsdagur. Byrjað verður á 5 km almenningshlaupi og hlaupið verður frá íþróttahöllinni klukkan 10:00. Frá klukkan 11 verður opið hús í íþróttahöllinni þar sem krakkarnir geta leikið sér í þrautabraut og öðru.
Þeir sem ætla að taka þátt í hlaupinu eru hvattir til að mæta tímanlega.
Við hvetjum forráðamenn og iðkendur til að taka þátt í hlaupinu og kíkja í höllina að því loknu og kynna sér starfið hjá Völsungi.
Dagurinn er haldinn í samstarfi við Íslandsbanka.
Boðið verður upp á glaðning í lok dags.
Hægt verður að fá aðstoð við skráningar í Nóra á staðnum en opnað verður fyrir skráningar í vikunni.
Skóbúðin býður upp á 20% aflslátt á Völsungsvörum þennan dag. Skóbúðin er opin 09:00-13:00 á laugardögum.
Það er tilvalið að kíkja á þessa gleði og skella sér síðan á leik Völsungs og Sindra í 2. deild karla kl. 14:00