Hlaupahópurinn Skokki

Hlaupahópurinn Skokki var stofnaður í 13. febrúar 2009. Aðalmarkmið hópsins er að auka daglega hreyfingu og lýðheilsu í góðum félagsskap.  Á veturna er

Hlaupahópurinn Skokki

Hlaupahópurinn Skokki var stofnaður í 13. febrúar 2009. Aðalmarkmið hópsins er að auka daglega hreyfingu og lýðheilsu í góðum félagsskap.  Á veturna er mest æft innanbæjar en þó er algengt að hlaupið sé út á Tjörnes um helgar. Á sumrin er meira um að hlaupið sé á stígum og slóðum kringum bæinn, við Botnsvatn og nágrenni og suður fyrir Kaldbakstjarnir svo eitthvað sé nefnt.

Fastir æfingatímar eru tvisvar í viku, á þriðjudögum kl. 18:00 við gervigrasvöll (neðri völlur á sumrin) og á laugardögum kl. 10:00 við sundlaug. 

ATH! Æfingarnar fara fram án þess að formlegur þjálfari sé á staðnum. Vanir iðkendur í Skokka hafa hinsvegar tekið að sér að vera óvönum hlaupurum til aðstoðar og ráðlegginga á æfingum. Það geta allir mætt á æfingu hjá Skokka enda er álagi hvers og eins stillt eftir vilja og getu. Hlaupahópurinn Skokki er útibú Völsungs í langhlaupum og hvetur áhugasama að láta sjá sig á æfingu.

Með því að smella á myndirnar að neðan má sjá þær stærri.

Íþróttafélagið Völsungur

Vallarhúsi- Stóragarði 8
640 Húsavík

Kt. 710269-6379
S. 4642052 - F. 4642092 - Gsm. 8953302
volsungur@volsungur.is

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann okkar.