Okkar mađur á skíđum

Stefán Jón Sigurgeirsson SKA. Það er ekki bara árangur Björgvins sem er glæsilegur. Stefán Jón Sigurgeirsson SKA náði í sína bestu fis punkta í svigi í nótt . Það er ekki oft sem keppendur ná að bæta fispunkta sína í þetta sterkum mótum. Stefán náði 38 fispunktum sem þýðir að á næsta heimslista verður hann í kringum 700 en hann er núna no 923. Á heimslista í svigi eru 6500 keppendur .
Stefán Jón Sigurgeirsson SKA. Það er ekki bara árangur Björgvins sem er glæsilegur. Stefán Jón Sigurgeirsson SKA náði í sína bestu fis punkta í svigi í nótt . Það er ekki oft sem keppendur ná að bæta fispunkta sína í þetta sterkum mótum. Stefán náði 38 fispunktum sem þýðir að á næsta heimslista verður hann í kringum 700 en hann er núna no 923. Á heimslista í svigi eru 6500 keppendur. Stórglæsilegur árangur hjá karlalandsliði Íslands á skíðum í Álfukeppninni. Keppni er nú lokið í Álfubikarnum. Síðasta greinin var svig en töluverð spenna var fyrir þessa síðustu keppnina þar sem Björgvin Björgvinsson Dalvík hefur átti í harðri keppni við Fredrik Nordh frá Svíþjóð. Hann hefur verið í sænska landsliðinu og evrópubikarliði þeirra undanfarin ár, hann kom með hópi Svía til Íslands og keppti hér á síðasta Íslandsmeistaramóti. Aðstæður til keppni voru góðar færi hart og gott. Ungur Frakki Favre Arnaud hafði besta tímann eftir fyrri ferð en Björgvin hafði annan tíma eftir fyrri ferð. Fredrik Nordh gerði mistök í fyrri ferð og var langt frá sínu besta. Í seinni ferð náði Fredrik lang besta tímanum en innan við 1 sek skildi 7 fyrstu menn í seinn ferð. Björgvin endaði í fjórða sæti í svigkeppninni en með þessum góða árangri tryggði Björgvin Björgvinsson sér sigur í samanlagðri keppni um Álfubikarinn sem er samanlagður árangur í öllum greinum sem keppt er í á þessari mótaröð. Í samanlagðri keppni í svigi endaði Björgvin í 5. sæti , hann endaði í 2. sæti samanlagt í stórsvigi hann varð annar í risasvigi og vann samanlagt í tvíkeppni (svigi og risasvigi) , með þessum glæsilega árangri vann Björgvin samanlagða stigakeppni Álfubikarsins . Keppnin í ár var mun harðari en undan farin ár enda mikið af landsliðum með keppendur sem keppa í Evrópubikar við æfingar , aðstæður í ár hafa verið þær bestu í 15 ára en mikill snjór er í Ástralíu og Nýja Sjálandi. Stefán Jón Sigurgeirsson SKA Það er ekki bara árangur Björgvins sem er glæsilegur. Stefán Jón Sigurgeirsson SKA náði í sína bestu fis punkta í svigi í nótt . Það er ekki oft sem keppendur ná að bæta fispunkta sína í þetta sterkum mótum. Stefán náði 38 fispunktum sem þýðir að á næsta heimslista verður hann í kringum 700 en hann er núna no 923. Á heimslista í svigi eru 6500 keppendur. Árni Þorvaldsson Ármanni. Árni náðir einnig sínum besta árangri í svigi í nótt hann endaði í 13. sæti og er við sína bestu svigpunkta . Árni náði einnig frábærum árangri í risasvigi þar sem hann endaði í 6. sæti og fékk sína bestu fispunkta í þeirri grein 37.30 Gísli Rafn Guðmundsson Ármanni hefur einnig verið að standa sig vel í risasvig en hann náði í 10. og 16. sæti í mótunum í ár . Gísli kláraði ekki svigkeppnina í nótt.
Niðurlag. Þetta er einn besti árangur hjá karlalandslið Íslands á skíðum. Hingað til höfum við yfirleitt verið með einn keppanda sem verður að standa sig og ef það gerist ekki þá er uppskeran rýr hjá okkur. Nú eigum við amk. fjóra keppendur sem geta náð árangri í keppni þeirra bestu. Karlalandliðið hefur nú getu til að ná árangri í Evrópubikar en ennþá er Björgvin sá eini sem við getum ætlast til að geti keppt á meðal þeirra bestu í Heimsbikar. Til að útskýra betur hvað heimsbikar er sterkt mót þá eru keppendur sem starta í hringum 60 með undir 10 fispunkta.










