Orkusalan

Um skíðasvæðið

Um skíðasvæðið

Skíðasvæði Völsungs er á Reykjaheiði, 8 km ofan við Húsavík.  Þar er lagt spor á hverjum degi, tvö saman með góðri hliðarbraut.  Yfirleitt eru brautirnar tvær, önnur eins km löng og hin átta km.

Góð aðstaða er við brautina, skíðaskáli með vatnssalerni og aðstöðu til að borða nesti og spjalla saman.  Díselrafstöð sér skálanum fyrir rafmagni og er reynt að hafa aðstöðuna opna um helgar og þegar iðkendafjöldi er nokkur.

Öllum er velkomið að fara í brautina og er ekki innheimt gjald fyrir.

Þetta er klárlega eitt alskemmtilegasta og besta gönguskíðasvæði landsins!

 

gngumenn

Göngumenn í brautinni 2010

img_5001_640

Séð yfir hluta brautanna 2009

brautgps_640

 8 km. brautin - yfirlitsmynd

haed_640

 Hæðargraph af 8 km. brautinni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning