Orkusalan

Fréttir

Völsungur í Strandagöngunni

Í gær, laugardaginn 12., var Strandagangan haldin nálægt Hólmavík.  Gangan er hluti af Íslandsgöngunni.  Völsungur átti 3 keppendur í 20 km. vegalengd, þá Örn, Sigurgeir og Skúla sem að sjálfsögðu stóðu sig mjög vel.  Örn var þriðji í sínum flokki, Sigurgeir fimmti og Skúli ellefti (keppa allir í sama flokki).  Þetta er afar góður árangur hjá Erni og er hann farinn að nálgast þá bestu á landinu, verður gaman að sjá hvað hann gerir í næstu göngum, sem eru Orkugangan hér við Húsavík þann 9. apríl og svo Fossavatnsgangan á Ísafirði 30. apríl. 

Á heimasíðu Strandamanna má sjá úrslit göngunnar og eins myndir úr göngunni.

Þess má svo geta hér að þrír keppendur frá Völsungi tóku þátt í Vasagöngunni, bræðurnir Helgi og Ásgeir ásamt Erni. Nánar verður sagt frá þeirri merku göngu hér síðar.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning