Orkusalan

Fréttir

Vasagangan 2011

Helgi og Ásgeir í Svíţjóđ á dögunum
Helgi og Ásgeir í Svíţjóđ á dögunum

Þrír keppendur frá Völsungi kepptu í Vasagöngunni nú í byrjun mars.  Voru þetta bræðurnir Helgi og Ásgeir Kristjánssynir og Örn Sigurðsson.  Gekk þeim félögum mjög vel í göngunni, en reyndar...............

......gengu þeir meira en hina eiginlegu Vasagöngu.  Helgi og Ásgeir gengu í "opnu spori" á mánudeginum, 28. febrúar og komu þeir samhliða í mark eftir kílómetrana 90 á tæplega sjö og hálfri klukkustund.  Sunnudaginn 6. mars gengur þeir svo í hinni eiginlegu Vasagöngu, þá var Ásgeir á tímanum 7:57:38 en Helgi 8:31:07.

Öddi gekk hins vegar á þriðjudeginum "hálf Vasa" og náði mjög góðum tíma þar sem hann gekk kílómetrana 45 á 2:34:20 og vann sig þar með úr sjöttu grúppu í þá þriðju, sem  gaf honum rétt til að starta mun framar en ella.  Í aðalgöngunni gekk hann svo á tímanum 5:47:32 sem er afar góður tími og var hann þriðji af þeim 22 Íslendingum sem tóku þátt í göngunni. 

Þetta er þó alls ekki í fyrsta skipti sem kapparnir taka þátt í Vasa göngunni.  Öddi var að keppa í þriðja skiptið, Helgi í sjötta skiptið og  Ásgeir í það níunda.  Auk þess hafa þeir gengið hálf Vasa, og opið spor í einhver skipti. 

 Þess má geta að það er mikill hugur í mönnum varðandi þáttöku í Vasagöngunni að ári og vonandi verður nokkur hópur húsvískra göngumanna þar á meðal.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning