Skíđagöngućfing barna á föstudag kl. 16:00
Almennt - fimmtudagur 24.feb.11 11:54 - Lestrar 447 - Athugasemdir (0)
Skíðagönguæfing fyrir börn og unglinga verður á föstudaginn kl. 16:00.
Mæting á skíðasvæðið á Reykjaheiði á kl. 16:15.
Í boði eru skipulagðar ferðir frá Húsavík kl. 16:00. Mæting við íþróttahöll kl. 16:00 og verður börnunum ekið til baka að æfingu lokinni um kl. 17:15. Skíðabúnaður er til staðar fyrir þá sem vilja og því þurfa foreldrar hvorki að útvega skíði né skó.Reglulegar æfingar: Á föstudögum kl. 16:00 og á sunnudögum kl. 11:00. Reyndur skíðagönguþjálfari hefur umsjón með æfingum. Stefnt er að þátttöku á Andrésar Andar leikunum fyrir þá sem vilja.
Skipulagðar ferðir verða í boði á föstudögum. Hópur áhugasamra foreldra stendur á bakvið átakið undir merkjum skíðadeildar Völsungs.
Undirbúningshópurinn











