Orkusalan

Fréttir

Skíđagöngućfing

Skíðagönguæfing verður á heiðinni í dag.  Mæting við höllina fyrir kl. 16:00 og verður þar sameinast í bíla.  Þeir sem geta keyrt endilega mæti klárir í slaginn!  Eins og áður verða skíði á staðnum fyrir þá sem ekki eiga.

Á sama tíma verður farið með "nýju" skúrana upp á heiði og þeim komið fyrir.  Þá verður aftur komið klósett, hiti og birta, kaffiaðstða og einnig geymslu- og áburðarskúr.  Tilvalið að hjálpa til við þetta þeir sem geta. 

 Búið að troða spor á heiðinni, sömu hringir og áður.  Einnig er brekkan troðin vegna kennslunnar í dag.  Hiti um og yfir 0°C og nokkuð hvasst en lægir vonandi með deginum.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning