Orkugöngufréttir
Almennt - fimmtudagur 7.apr.11 14:09 - Lestrar 607 - Athugasemdir (0)
Nú eru 2 dagar í Orkugönguna og allt að verða klárt. Búið er að troða leiðina 4 umferðir í vikunni. Fyrstu 25 km. eru í frekar hörðu færi og ætti rennsli að vera gott.Eins og veðurútlitið er má hinsvegar reikna með að seinni helmingur leiðarinnar verði þungur róður. Hefur því verið tekin ákvörðun um að reyna að stytta þessa lengstu göngu landsins þannig að í ár verði hún bara næstlengst.Stefnt er að því að í stað þess að beygja í suðvestur í átt að Þeistareykjum verði haldið í vest-norðvestur, beina leið inn í sporið sunnan við Rauðhól
http://www.visitmyvatn.is/vidburdir/news/orkugangan-2010/
Ef þetta gengur eftir mun gangan verða á bilinu 45-50km löng og meðvindur alla leiðina.
Nefndin











