Orkusalan

Nýjustu fréttir

  • Ćfingabúđir á Húsavík, hluti af Sail Húsavík hátíđinni.

    Um 50 krakkar á öllum aldri, 12-50, ára eru komin til Húsavíkur til að taka þátt í vikulöngum æfingabúðum siglingafélaga á landinu.  Siglingadeild Völsungs ásamt siglingaklúbbnum Nökkva á Akureyri halda utan um viðburðinn en þjálfarar flestra siglingaklúbba á landinu sjá um æfingahlutann í samvinnu.  Mikil stemming var fyrsta daginn og þrátt fyrir að byrinn hafi ekki verið mikill, var gleðin mikil og stemmingin frábær. Æfingar verða alla daga fram á fimmtudag, síðan keppni á föstudag sem endar með grillveislu og verðlaunaafhendingu.  Á sama tíma er Sail Húsavík, strandmenningarhátíð haldin og voru allflestir þátttakenda með í glæsilegri opnunarhátíð í gærkveldi og víða mátti heyra Færeyska harmonikku tónlist hljóma úr glæsilegum uppgerðum seglskútum og stóð gleðin fram eftir nóttinni.  Flaggskip Nökkva, Paradís var siglt til Húsavíkur en einnig eru þar Gógó og Tíbrá frá Akureyri.

    img_3170_400

    Fyrstu kænurnar á floti í morgun í blíðunni á Húsavík.

    img_3119_400

    Yngstu þáttakendur Nökkva, fv, Kristján Logi, Lilja, Sigurður Orri, Breki og Stefán. Frábærir krakkar og framtíðar siglarar klúbbsins.

    img_3150_400

    Upphitun í fjörunni, mörgæsarhlaupið alveg frábært.

    Frétt af heimasíðu Nökkva


  • Siglinganámskeiđ 27. júní

    Dagsnámskeið verður haldið laugardaginn 27. júní n.k. kl. 9 - 12 og 13 - 16 fyrir 9 - 14 ára.
    Verð er kr. 1500 á barn.

    Skráning á námskeiðið er hjá:
    Ingólfur Freysson ingolfur@fsh.is gsm. 899 9741 eða Sæunn Björnsd.  jolly@simnet.is  gsm. 862 2334.

    Áhugasömum börnum sem langar að læra að sigla og/eða  taka þátt í Landsmótinu á Akureyri stendur til boða að fara á æfingabúðir á Akureyri í byrjun júlí.

     


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning