Orkusalan

Starfssemi

Meistaraflokkur

Meistaraflokkur knattspyrnudeildar Völsungs er rekin sem sér deild innan félagsins og er með sér stjórn. Félagið leikur nú í 1. deild Íslandsmótsins og tekur einnig þátt í bikarkeppni og deildarbikarkeppni KSÍ.
Vel yfir tuttugu leikmenn æfa með liðinu undir handleiðslu þjálfara og aðstoðarmanns hans. Nokkrir erfiðleikar eru við æfingar bæði hvað varðar æfingaaðstöðu á vetrum og kannski sérstaklega að vori, og einnig hvað mannskapurinn er dreifður um landið.
Deildin er rekin nær eingöngu með auglýsinga- og samstarfssamningum við fyrirtæki ásamt tekjum af leikjum. Einnig koma til styrkir að litlu leiti, t.d. frá Húsavíkurbæ og aðalsjóði Völsungs.
Stjórn meistaraflokks setti fyrir keppnistímabilið 2003 eftirfarandi markmið:

Markmið
Styrkja þá leikmenn sem æfa með liðinu í að ná sem lengst (spila sem best) og mestum framförum ásamt því að liðsheildin nái sem mestum og bestum árangri. Halda aga yfir leikmannahópnum sem heild og stuðla að ánægju þeirra sem að flokknum koma.
Stuðla að metnaði yngri flokka til að spila undir merkjum Völsungs í framtíðinni.
Tölulegt markmið var að Völsungur mundi vinna sig upp í 1. deild árið 2003 og tryggi sig þar í sessi næstu árin.
Fjárhagsleg markmið er að reka deildina alltaf réttu megin við núllið.

Fjáröflun
Meistaraflokkur Völsungs stendur í ýmiskonar fjáröflun til að fjármagna rekstur deildarinnar. Hér að neðan má sækja kynningarbækling þar sem útlistaðir eru þeir auglýsingamöguleikar sem boðið er upp á. Athugið að bæklingurinn er frekar stór og því gæti tekið smá stund að sækja hann. Bæklingurinn er á PDF sniði og því þarf forritið Acrobat Reader til að geta skoðað hann.

Kynningarefni (PDF skjal / 2.31 MB)

Yngri flokkar

Mjög öflugt og gott starf er í yngri flokkum félagsins, foreldrar mjög virkir og árangur verið góður á mótum.
Unglingaráð er skipað einu foreldri frá hverjum flokki en bakvið hvern flokk er 4-5 manna foreldraráð, er þetta gert til að virkja sem flesta foreldra til starfsins. Um 130 börn bæði drengir og stúlkur æfa fótbolta og hefur verið mikil aukning hjá stúlkum og er það gleðilegt.

Í sumar mun 6. flokkur drengja taka þátt í Shellmótinu í Vestmanneyjum en þar voru Völsungar með lið fyrir mörgum árum en fóru út og tók það nokkur ár að komast að aftur. Þáttaka verður með svipuðum hætti í Íslandsmóti og undanfarin ár það er keppendur í flestum flokkum bæði karla og kvenna. Alltaf er nóg að gerast í fótboltanum, æfingar eru hjá okkur fyrir 6. flokk og upp í meistaraflokk hjá körlum og 6. 5. og 4. flokk hjá stúlkum.
Þjálfaramál hafa verið með ágætum og hefur okkur tekist að halda að mestu sömu þjálfurum og hafa verið undanfarin 3 ár.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning