Orkusalan

Fréttir

Ţorlákur Árnason í heimsókn á Húsavík

Ţorlákur Árnason
Ţorlákur Árnason
Þorlákur Árnason þjálfari kvennaliðs íslandsmeistara Stjörnunnar og þjálfari u17 kvenna heimsótti okkur í 

gær (mánudaginn 27.september).

Þorlákur, eða Láki, hefur víða komið við í boltanum bæði sem leikmaður og þjálfari. Láki var öflugur leikmaður sjálfur sem þurfti að hætta ungur knattspyrnuiðkun vegna erfiðra meiðsla. Hér að neðan má sjá feril kappans:

Leikmaður

Spilaði yngri flokka með KR.

1989 leikmaður hjá Þrótti Neskaupstað.

1990-1992 leikmaður hjá Leiftri Ólafsfirði.

Meiddist 1994 með Val og hætti að spila.

 

Þjálfari

Leiftur Ólafsfirði yngri flokkar 1990-1992.

Valur 1994-1995 - yngri flokkar.

Ægir Þorlákshöfn 1995-1996 - mfl.karla og yngri flokkar.

Valur  1996-1998 - 2.flokkur og yfirþjálfari yngri flokka.

ÍA 1998-2001 - Yfirþjálfari yngri flokka.

Valur 2001-2003 - mfl.karla.

Fylkir 2003-2005 - mfl.karla.

Stjarnan yfirþjálfari yngri flokka 2005-2010.

 

Stjarnan mfl.kvenna 2010-

Þjálfari u-17 kvenna  2009-

 

Láki hitti fyrst krakkana á Afrekssviði FSH og Völsungs og spjallaði við þau í tæpar tvær klukkustundir. Hann fór yfir ansi margt með krökkunum en aðaláherslan var afrekshugsun, metnaður og hvað þarf til að ná langt í sinni íþróttagrein. Það var uppfræðandi fyrir unga iðkendur að hlýða á sögur og frásagnir af landsliðsstelpum og strákum sem voru í sömu sporum og þau fyrir stuttu síðan. Stefndu hátt og lögðu mikið á sig til að komast þangað sem þau eru í dag. Auðvitað var líka spennandi að Láki hefur þjálfað marga af þeim iðkendum sem eru í A-landsliðum karla og kvenna í dag.

Sérstaklega þótti krökkunum áhugavert að hlusta á Láka tala um árangur og leiðir til að ná árangri í ljósi þess að hann er nýbakaður íslandsmeistari með Stjörnunni. Það voru ekki margir sem sáu fyrir sér að Stjarnan ynni íslandsmótið í ár þar sem Valur hefur verið unnið nánast allt undanfarin ár. Ekki nóg með að Valsstelpur væru sterkari á „pappírunum“ með 12 landsliðskonur í sínum leikmannahópi þá hafði Stjarnan enga sem spilað hafði A-landsleik. Frábær árangur hjá Stjörnunni í sumar. Einnig má ekki gleyma glæsilegum árangri hans með u-17 ára landslið kvenna sem endaði í 4.sæti á EM í sumar.

Eftir stutta pásu komu stelpurnar í meistara-, 3.-og 4.flokki til fundar við Láka. Eftir að hafa hlustað á hann lýsa tæpitungulaust starfinu hjá Stjörnunni og hvernig sumarið var þá beindust spjótin að þeim sjálfum og því sem þær höfðu hér á Húsavík. Hvaða aðstæður og aðbúnað þær hefðu til að bæta sig og ná langt. Margt fróðlegt kom uppúr krafsinu í þeim umræðum og óhætt að segja að stelpurnar hafi farið margs vísari af þessum skemmtilega fundi.

Við þökkum Þorláki kærlega fyrir góðan dag og þessa lærdómsríku heimsókn. Auðvitað með óskum um áframhaldandi gott gengi með sín lið.

Fundirnir voru haldnir í Verkalýðssalnum hjá Framsýn og kunnum við Kúta bestu þakkir fyrir aðstöðuna og góðar móttökur.



Engar umrćđur fundust fyrir ţessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning