Orkusalan

Fréttir

Úrtaksćfingar hjá U-17 og U-19 karla

Um komandi helgi fara fram úrtaksæfingar hjá U17 og U19 karla og verða tveir hópar í gangi hjá U17.  Æfingarnar fara fram í Kórnum og Egilshöllinni og hafa þjálfararnir, Gunnar Guðmundsson og Kristinn R. Jónsson, valið hópa fyrir þessar æfingar.

Völsungur á 1 fulltrúa í U-19 hópnum, það er Hafþór Mar Aðalgeirsson sem fer til æfinga um komandi helgi.

Völsungur á 2 fulltrúa í U-17 hóp drengja sem fæddir eru 1996, það eru Ásgeir Sigurgeirsson og Heimir Pálsson sem fara til æfinga um komandi helgi.

Heimasíðan óskar drengjunum góðs gengis og hvetur alla iðkendur til dáða.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning