Tveir ungir leikmenn úr Völsungi til GAIS á reynslu
Almennt - fimmtudagur 22.apr.10 08:03 - Lestrar 449 - Athugasemdir (0)

Hafþór Mar Aðalgeirsson og Bjarki Þór Jónasson, leikmenn Völsungs, munu á morgun
fara til Svíþjóðar þar sem þeir munu æfa með GAIS í eina viku.
Hafþór Mar hefur verið að æfa með U-17 ára landsliðinu í vetur.
Þrír Íslendingar eru á mála hjá GAIS en þar á meðal er Hallgrímur Jónasson sem hóf ferilinn með Völsungi.
Guðjón Baldvinsson og Guðmundur Reynir Gunnarsson eru einnig á mála hjá GAIS en þeir eru núna í láni hjá KR.











