Sigur í Soccerademótinu
Almennt - sunnudagur 14.feb.10 20:25 - Lestrar 526 - Athugasemdir (0)

Rétt í þessu voru strákarnir að tryggja sér sigur á KA í úrslitaleik Soccerademótsins. Jafnt var 1-1 eftir venjulegan tíma en strákarnir tryggðu sér sigur í vítaspyrnukeppni þegar Arnþór skoraði síðasta markið eftir mikla dramatík. Það var Gunni Siggi sem jafnaði af 25 m færi í venjulegum leiktíma en Hallgrímur Steina bakara hafði komið KA mönnum yfir.
Til hamingju strákar.











