Almennt - mánudagur 9.ágú.10 13:08 - Lestrar 510 -
Athugasemdir (0)
Haffi og félagar unnu síðasta leikinn gegn skotum í vítaspyrnukeppni. Haffi kom inná vinstri kantinn þegar um 20 min voru eftir í stöðunni
1-0 fyrir skota. Okkar menn jöfnuðu svo eftir þetta og unnu 7-6 í vítaspyrnukeppni. Haffi var einn af vítaskyttunum, fór yfirvegaður á
punktinn og skoraði stöngin inn niðri við jörð, algjörlega óverjandi fyrir markmanninn. Flottur árangur hjá kappanum og 4
landsleikir komnir í reynslubankann fyrir framtíðina.