Orkusalan

Fréttir

Naumt tap hjá stelpunum í dag.

Meistaraflokkur kvenna spilaði til úrslita í B-deild lengjubikarsins í dag. Leikurinn fór fram á gervigrasinu í Laugardal. Dagurinn byrjaði ekki vel því Ragna, Inda og Anna Guðrún komust ekki suður í morgun, því ekkert var flogið. En þær sem eftir stóðu voru hreint magnaðar. Leikurinn endaði 3-2 fyrir Þróttara eftir framlengingu. Þróttarar komust yfir 1-0 en okkar stelpur jöfnuðu og komust svo í 1-2, Þróttarar jöfnuðu svo í seinni hálfleik og því þurfti að framlengja. Það var svo uppúr miðjum seinni hálfleik framlengingar sem Þróttarar skoruðu sigurmarkið og unnu bikarinn. Mörkin skoruðu Hafrún og Sigrún Lilja. Frábær frammistaða hjá stelpunum. Liðið: Anna Jónína; Dagný, Jóney, Sigrún Björg, Anna Halldóra; Berglind Jóna, Hafrún, Ásrún, Jóhanna, Sigrún Lilja; Helga Björk.  Varamenn: Sólveig og Heiðdís.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning