Meistaraflokkur karla á ferđalagi
Almennt - laugardagur 6.mar.10 15:44 - Lestrar 516 - Athugasemdir (0)

Strákarnir eru staddir í höfuðborginni í æfingaferð þessa helgina. Í gær spiluðu þeir við HK og unnu 2-0 með mörkum frá Elfari Árna úr víti og glæsilegum þrumufleyg Arnþórs Hermanns. Í dag spiluðu þeir svo við Val.
Þeim leik töpuðu strákarnir 2-1 eftir að hafa komist yfir. Markið skoraði Nonni Jóa eftir að Kjartan Sturluson hafði varið glæsilega aukaspyrnu Hrannars. Valsmenn jöfnuðu svo metin í seinnihálfleiknum og skoruðu svo sigurmarkið á síðustu mínútunni. Um helgina eru líka 4 strákar að æfa með undirbúningshópum fyrir U-17 og U-19, þeir Hrannar Björn, Arnþór, Hafþór og Sigvaldi en þeir komu allir við sögu í leiknum gegn HK í gær.











