Orkusalan

Nýjustu fréttir

  • Helga Björk á U17 æfingar um helgina


    Þorlákur Árna landsliðsþjálfari hefur valið Helgu Bjöku til áframhaldandi æfinga um helgina.  Æft verður í Kórnum á laugardag og Egilshöll á sunnudag. Við óskum Helgu góðs gengis.

  • Meistaraflokkur karla á ferðalagi


    Strákarnir eru staddir í höfuðborginni í æfingaferð þessa helgina. Í gær spiluðu þeir við HK og unnu 2-0 með mörkum frá Elfari Árna úr víti og glæsilegum þrumufleyg Arnþórs Hermanns. Í dag spiluðu þeir svo við Val.

    Lesa meira

  • Búið að draga í Bikarkeppni KSÍ


    Búið er að draga í tvær fyrstu umferðir keppninnar í karla og kvenna flokki. Strákarnir koma inn í 2. umferð og mæta Dalvík/Reyni eða Samherja þriðjudaginn 18. maí .

    Stelpurnar fara líka beint í aðra umferð og spila 5. júní við Hött á Egilsstöðum.


  • Hafþór og Sigvaldi á U-17


    Hafþór Mar Aðalgeirsson og Sigvaldi Þór Einarsson eru í 23 manna úrtakshópi sem Gunnar Guðmundsson þjálfari U-17 hefur valið til æfinga um helgina. Um er að ræða æfingu í Kórnum á laugardag og leik í Egilshöll á sunnudag. Í hópnum er svo annar piltur sem er okkur ekki ókunnur, það er Þorvaldur "Doddi" Sveinbjörnsson sem bjó hér og steig sín fyrstu skref í boltanum í grænu treyjunni. Við óskum þeim öllum góðs gengis um helgina.

  • Helga Björk á U-17 æfingar um helgina


    Þorlákur Árnason landsliðsþjálfari U-17 hefur valið Helgu Björk Heiðarsdóttur til þátttöku í æfingum um helgina. Við óskum Helgu Björk góðs gengis um helgina.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning