Lög og reglur

Lög íţróttafélagsins Völsungs Heiti og markmiđ 1. grein Félagiđ heitir Íţróttafélagiđ Völsungur,  skammstafađ Í.F.Völsungur.  Heimili ţess og varnarţing

Lög og reglur

Lög íþróttafélagsins Völsungs

Heiti og markmið

1. grein
Félagið heitir Íþróttafélagið Völsungur,  skammstafað Í.F.Völsungur.  Heimili þess og varnarþing er á Húsavík.

2. grein
Markmið félagsins er að iðka íþróttir, stofna til íþróttamóta og sýninga, glæða áhuga félagsmanna og annarra á íþróttum og vekja fólk til skilnings á gildi  íþróttalífs og félagsstarfa.

Merki og búningur

3. grein
Merki félagsins er skjöldur með grænum grunnfleti, mynd af knetti og bókstöfum Í. F. V. í hvítum lit. Litir félagsins eru grænn og  hvítur

Aðild að heildarsamtökum

4. grein
Félagið er aðili að Íþróttasambandi Íslands (ÍSÍ) og sérsamböndum þess. Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ) og Hérðassambandi Þingeyinga (HSÞ)

Félagar og árgjöld

5. grein
Félagi getur hver sá orðið sem þess óskar og samþykkir að taka á sig þær skyldur er því fylgja. Allir þeir sem taka að sér störf í stjórnum og ráðum félagsins verða sjálfkrafa félagsmenn. Sérhverjum  iðkanda /félagsmanni, 18 ára og eldri ber að greiða árgjald til félagsins. Árgjöld félagsins skulu ákveðin á aðalfundi ár hvert. Árgjöld renna í aðalsjóð.

Íþróttadeildir  og verkefni þeirra

6. grein
Iðkendur íþróttagreina mynda deildir innan félagsins og skal hver deild hafa sérstaka stjórn og aðskilinn fjárhag. Stjórnir deilda sjá um daglegan rekstur þeirra. Sérhver deild skal annast sinn eigin fjárhag og ber stjórn hennar ábyrgð á fjárhagslegri afkomu deildarinnar gagnvart aðalstjórn og aðalfundi félagsins. Íþróttadeild skal hafa tekjur af kappleikjum og mótum í viðkomandi íþróttagrein, svo og af annarri fjáröflun, sem hún má efna til í samráði við aðalstjórn félagsins. Deildir lúta sameiginlegri stjórn félagsins, sem fer með æðsta vald í málefnum þess á milli aðalfunda. Ákvörðun um stofnun íþróttadeildar félagsins verður aðeins tekin á aðalfundi félagsins.

7. grein
Hver deild innan félagsins skal hafa sérstaka stjórn, sem skipuð er þrem mönnum hið fæsta. Stjórnir deilda skulu skila til aðalstjórnar félagsins skýrslu  um starfsemi viðkomandi deildar. Aðalstjórn skal taka helstu atriði úr skýrslum deildanna í skýrslu sína á aðalfundi félagsins. Reiknisár félagsins og deildanna er 1.janúar til 31.desember.

Rekstur  deilda skal vera hallalaus á hverju ári.

 Allar meiriháttar fjárhagslegar skuldbindingar s.s leikmannasamninga og þjálfarasamninga  ber stjórnum deilda að leggja fyrir aðalstjórn til samþykktar.

  1. Stjórnir deilda skulu skila fjárhagsáætlun fyrir 15. nóvember ár hvert þar sem fram kemur námkvæmt yfirlit yfir tekjur og gjöld fyrir hvern mánuð næsta starfsárs. Gera skal aðalstjórn nákvæma grein fyrir fjárhagsáætlunum  sem staðfestir þær eða gerir athugasemdir.
  2. Aðalstjórn hefur á hverjum tíma rétt til að skoða bókhald og fjárreiður deildar og jafnframt skipa sérstaka fjárhagsstjórn ef að þurfa þykir.

Aðalfundur félagsins,fundartími og fundarboð

8. grein.
Aðalfund félagsins skal halda eigi síðar en í lok apríl ár hvert. Hann hefur æðsta vald innan félagsins og ákvörðunarrétt í öllum málefnum þess. Aðalfund skal boða rækilega og er hann lögmætur sé til hans boðað með minnst einnar viku fyrirvara. Tillögur  um lagabreytingar skulu hafa borist aðalstjórn eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund.

Dagskrá aðalfundar félagsins

9. grein.
Dagskrá aðalfundar skal vera:
a) Formaður setur fundinn
b) Kosning  fundarstjóra og fundarritara
c) Skýrsla stjórnar
d) Að leggja fram til samþykktar ársreikninga félagsins.
e) Að taka ákvörðun um lagabreytingar.
f) Að taka ákvörðun um árgjöld.
g) Að kjósa stjórn og endurskoðendur reikninga félagsins.
h) Að kjósa starfsnefndir, ef þurfa þykir.
i) Að taka til umræðu og afgreiðslu önnur mál.

Félagsfundir

10. grein
Stjórn félagsins getur boðið til almenns félagsfundar, þegar hún telur nauðsynlegt. Skylt skal henni að boða til almenns félagsfundar ef 20 atkvæðisbærir félagsmenn hið fæsta,óska eftir því skriflega.

11. grein
Á fundum félagsins ræður einfaldur meirihluti greiddra atkvæða úrslitum mála,þó skulu lagabreytingar og ákvörðun um stofnun nýrra deilda því aðeins öðlast gildi, að 2/3 hluti atkvæðisbærra fundarmanna greiða þeim atkvæði sitt.

Stjórnarstörf, atkvæðis- og tillöguréttur

12. grein
Allir skuldlausir félagsmenn hafa kjörgengi til stjórnarstarfa innan félagsins, atkvæðisrétt, tillögurétt og málfrelsi  á aðalfundi félagsins.

Aðalstjórn, skipan og verkaskipting

13. grein.
Stjórn félagsins skal skipuð fimm fulltrúum,  formanni, gjaldkera, ritara og tveimur meðstjórnendum. Stjórnarkjöri skal haga þannig að formaður er fyrst kosinn sérstaklega og síðan aðrir stjórnarmenn félagsins. Stjórn tilnefni varaformann úr sínum röðum. Kjósa skal tvo fulltrúa sem varamenn í stjórn félagsins.  Stjórnina skal kjósa á aðalfundi og nær kjörtímabil hennar til næsta aðalfundar. Á aðalfundi skal  kjósa  löggiltan endurskoðenda reikninga félagsins.

14. grein.
Formaður boða til fundar og stýrir þeim. Honum er heimilt er að skipa sérstakan fundarstjóra á aðalfundum og almennum félagsfundum. Hann skal boða til stjórnarfunda svo oft sem hann telur nauðsynlegt eða ef einhver stjórnarmaður óskar þess. Ritari bókar fundargerðir og skal sjá um félagatal félagsins. Gjaldkeri hefur umsjá um fjárhag félagsins, innheimtu gjalda og sér um að bókhald félagsins sé í samræmi við góðar bókhaldsreglur.

15. grein.
Stjórnarfundur er lögmætur,  ef meirihluti stjórnar situr hann. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála á stjórnarfundum. Falli atkvæði jöfn, ræður atkvæði formanns. Formaður skal jafnan boða varamann til stjórnarfunda, ef aðalmaður forfallast. Heimilt er formanni að boða varamenn til stjórnarfunda þótt aðalmenn séu ekki forfallaðir. Sé aðalstjórn fullskipuð á fundi hafa varamenn tillögurétt og málfrelsi, en ekki atkvæðisrétt.

Aðalstjórn, verkefni.

16. grein.
Aðalstjórn skal gæta hagsmuna félagsins útávið og vinna að því að gera félagsstarfið gróskumikið og skemmtilegt. Hún skal samræma starfsemi deildanna og móta stefnu félagsins í öllum aðalatriðum. Jafnan skal hún hafa samráð við stjórnir deildanna um þau mál er þær varðar. Á aðalfundi skal formaður leggja fram ársskýrslu um starfsemi félagsins og gjaldkeri skila af sér endurskoðuðum ársreikningi þess. Stjórn félagsins ber sameiginlega ábyrgð á fjárreiðum félagsins og skuldbindingum þess. Aðalstjórn getur ein skuldbundið félagið útá við. Þó er félaginu óheimilt að taka lán með ábyrgð einstaklinga.

Viðurkenningar og heiðursmerki

17. grein.
Aðalstjórn veitir viðurkenningar fyrir íþróttaárangur eða störf í þágu félagsins samkvæmt reglum, er hún setur og aðalfundur samþykkir.

Stofnun nýrrar deildar

18. grein.
Komi fram ósk meðal félagsmanna um að stofna nýja íþróttadeild innan félagsins, skal hún send skriflega til stjórnar félagsins undirrituð af minnst 50 atkvæðisbærum félagsmönnum.
Aðalstjórninni er þá skylt að leggja fram tillögu um stofnun deildarinnar á næsta aðalfundi félagsins. Samþykki aðalfundur stofnun deildarinnar með tilskyldum meirihluta atkvæða samkv. 11. gr.,skal aðalstjórn boða til stofnfundarins.

Framlög aðalstjórnar til deilda og fundur með deildum

19. grein.
Aðalstjórn ákveður framlög til deilda úr aðalsjóði félagsins. Hún skal halda fundi með formönnum deildanna svo oft, sem hún telur nauðsynlegt og eigi sjaldnar en þrisvar á ári. Á þessum fundum skulu deildarformenn gera grein fyrir starfsemi deildanna og starfsemi þeirra samræmd. Komi ágreiningur milli deilda sker aðalstjórn úr.

Eignir félagsins

20.  grein.
Allar eignir félagsins eru sameign þess, hvort sem þær eru í umsjá aðalstjórnar eða einstakra deilda. Hætti íþróttadeild starfsemi skal aðalstjórn taka í sína vörslu fjármuni og aðrar eignir félagsins, sem verið hafa í umsjá deildarinnar, þar með taldar fundargerðabækur, bréf og önnur gögn. Verðlaunagripir og verðmæt skjöl skulu vera í vörslu aðalstjórnar, þó er félagsstjórn heimilt að afhenda Safnahúsinu á Húsavík til varanlegrar varðveislu fullritaðar fundargerðabækur, bréf og önnur gögn, er kunna að hafa sögu- og safngildi.

Úrsögn

21. grein.
Úrsögn úr félaginu skal tilkynna  framkvæmdastjóra félagsins skriflega og er hún ekki lögmæt fyrr en stjórnin hefur samþykkt hana.

Breytingar á samþykktum

22. grein.
Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi.

Gildistaka

23. grein.
Lög þessi öðlast þegar gildi og falla jafnframt úr gildi öll eldri lög félagsins.

Húsavík, 4.júní. 2013
Aðalfundur Í.F.Völsungs.

Íţróttafélagiđ Völsungur

Vallarhúsi- Stóragarđi 8
640 Húsavík

Kt. 710269-6379
S. 4642052 - F. 4642092 - Gsm. 8953302
volsungur@volsungur.is 

Póstlisti

Skráđu ţig á póstlistann okkar.

Fylgdu okkur á Facebook

Það er alltaf eitthvað líf og fjör á facebook síðunni okkar. Skelltu einu LIKE á hana og málið er dautt.