Ragnar hćttur sem ţjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu
Ragnar Hauksson og meistaraflokksráð karla í knattspyrnu hafa komist að samkomulagi um starfslok Ragnars sem þjálfara liðsins. Nú þegar hefur meistaraflokksráð karla hafið leit að nýjum þjálfara.
Sameiginlega yfirlýsingu Völsungs og Ragnars má sjá að neðan.
Yfirlýsing meistaraflokksráðs karla og Ragnars.
Ragnar Hauksson og Völsungur hafa komist að samkomulagi um starfslok Ragnars sem þjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Völsungi. Ragnar hefur þjálfað lið Völsungs undangengið ár og höfðu báðir aðilar komist að samkomulagi um áframhaldandi samstarf. Af persónulegum ástæðum telur Ragnar sig ekki geta sinnt starfinu af sama krafti og áður og því skilja leiðir að þessu sinni. Völsungur vill nota tækifærið og þakka Ragnari fyrir samstarfið og um leið óska honum velfarnaðar í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur.