Nýr framkvæmdastjóri
19. september 2012 - Lestrar 85
Kjartan Páll Þórarinsson hefur tekið til starfa sem framkvædastjóri Völsungs. Kjartan tekur við starfinu af Sveni Aðalsteinssyni og um leið og Kjartan er boðinn velkominn til starfa þakkar Íþróttafélagið Völsungur Sveini fyrir göfugt starf í þágu félagsins.
Kjartan er með skrifstofutíma á mánudögum, þriðjudögum og föstudögum frá kl. 8:30 - 15:30, en skrifstofa framkvæmdastjóra er á Grænatorgi sem er á efri hæð
íþróttahallarinnar.
Einnig er hægt að ná af honum í síma alla virka daga frá 8-16 í símanúmerið
895-3302.





