Nýárs- og afmćlismót í blaki
Mótið hefst kl. 18:25 á föstudegi og spilað verður fram undir miðnætti. Á laugardaginn hefjast leikir kl. 08:30 og síðustu leikir
áætlaðir að hefjist kl. 19:00. Á laugardag verður einnig spilað á Ýdölum eða milli kl. 08:30 og 13:30.
Alls eru 36 lið skráð til leiks þar af 8 karlalið. Koma keppendur allt frá Siglufirði til Reyðarfjarðar og eru keppendur ríflega 250 talsins.
Hægt er að fylgjast með fréttum og framgangi mótsins á vefsíðu BLÍ en einnig viljum við hvetja alla bæjarbúa og aðra
áhugasama til að líta við í Íþróttahöllinni eða á Ýdölum og fylgjast með skemmtilegum tilþrifum og
góðum leikjum. Það er víst að þar sem blakfólk kemur saman er gaman.