Lokahóf yngri flokka í knattspyrnu
Lokahóf yngri-flokka í knattspyrnu verður haldið miðvikudaginn 17. september klukkan 17:30 í íþróttahöllinni. Lokahófið verður haldið með svipuðum hætti og undanfarin ár, þjálfarar munu fara yfir sumarið hjá hverjum flokki fyrir sig og veita verlaun/viðurkenningu.
Eins og fyrr segir mun hófið hefjast 17:30 og af þeim sökum mun æfing hjá 8. flokki í knattspyrnu og 6. flokk kk í handbolta falla niður. Ásamt því munu fimleikarnir klárast klukkan 17:00 þennan eina dag.
Hvetjum fólk til að mæta með krökkum sínum og hafa góðan dag saman í höllinni. Að lokum munu meistaraflokkar í knattspyrnu grilla ofan í mannskapin, bæði börn og fullorðna.