Jólablađ Völsungs
Jólablað Vöslungs fyrir árið 2014 er komið út og mun koma inn um lúgu allra heimila á Húsavík á næstu dögum. Blaðið er fyrir löngu orðinn fastur liður í strafsemi félagsins og er mikilvæg heimild í því góða starfi sem er unnið innan raða Völsungs.
Blaðið er með svipuðu sniði og undanfarin ár og er stiklað á stóru hjá öllum deildum félagsins sem hafa starfað á árinu sem er að líða. Brottfluttir Völsungar sem hafa áhuga á að fá blaðið til sín er bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra í síma 895-3302 eða í netfangið volsungur@volsungur.is
Með því að smella á myndina af forsíðunni, hér að neðan, má sjá blaðið í netupplausn, en einnig er hægt að sjá blaðið og gömul blöð undir liðnum Jólablað Völsungs á forsíðu heimasíðunnar.