Dagskrá fyrir viku 6 í sumarskólanum
18. júlí 2014 - Lestrar 162
Þá fer sumarskólinn þetta sumarið að líða undir lok og er næsta vika, 21-25. júlí, sú síðasta. Dagskráin er fjölbreytt að vanda og verður meðal annars föndrað fyrir mærudaga, slökkvistöðin heimsótt og farið verður í sandkastalakeppni.
Allar nánari upplýsingar og skráning er í gegnum netfangið volsungur@volsungur.is eða í síma 895-3302